Nýjungar í Emlid Flow
Nýverið hleypti Emlid af stokkunum uppfærslum fyrir Emlid Flow
Uppfærslan er heldur betur kærkomin en núna geta notendur flokkað verkefni í möppur og flutt út (e. export) hluta verkefnis, í stað þess að þurfa að flytja út allt verkefnið í einu.
#1: Möppuskipulag
Nú er hægt að stofna möppur og flokka verkefni á einfaldan og skýran hátt í Emlid Flow.
Hægt er að búa til sérstaka möppu fyrir hvert verkefni, hvern starfsmann, málsnúmer eða aðra þætti sem skipta máli í daglegum rekstri.
#2: Flytja út hluta verks
Nú er hægt að flytja út (e. export) staka punkta eða línur úr verkefni í stað þess að exporta
alla punkta í einu.
Allir punktar og línur raðast sjálfkrafa eftir þeim degi sem þau voru mæld, sem gerir valið fljótlegt og þægilegt þegar vinna þarf með tilgreind gögn.
Langar þig að heyra meira um mælitækin frá Emlid og Emlid Flow-appið?
Sendu okkur línu á pantanir@geoform.is eða kíktu í heimsókn til okkar á Stórhöfða 17, 110 Reykjavík.

