
landskipti, merkjalýsing og GPS mælingar
landskipti, merkjalýsing og GPS mælingar
Landskipti
GeoForm ehf. veitir ráðgjöf um landskipti og aðstoðar landeigendur við ferlið.
Við GPS mælum með nákvæmum mælitækjum í mörkinni, útbúum löggilda uppdrætti og merkjalýsingu, öflum grunngagna hjá stjórnsýslu og tökum loftmyndir með flygildi ef þess er óskað.
Löggildar merkjalýsingar
Hjá GeoForm starfa aðilar sem hlotið hafa löggildingu sem merkjalýsendur. Við útbúum merkjalýsingar samkvæmt nýrri Reglugerð um merki fasteigna sem hægt er að finna á Ísland.is Einnig aðstoðum við þig að undirbúa landskiptin og afla allra nauðsynlegra gagna og safna undirskriftum hjá hagsmunaaðilum ef þess er óskað.
Getum einnig sett út lóðir, landamerki og byggingarreiti samkvæmt lóðarblöðum, deiliskipulagi, landskiptaskjali, merkjalýsingu og GPS hnitum.
Skil á gögnum
Við sjáum um allt ferlið, og skilum inn gögnum til stjórnsýslu og HMS.
Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum, landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum einhlíta, lögformlega skráningu eignamarka lands samkvæmt samræmdum reglum og kröfum til mælinga, skráningar og birtingar upplýsinga um landamerki og lóðamörk.
Við tryggjum að gæði gagna sem skilað er inn í landeignaskrá séu þannig úr garði gerðar að grunnupplýsingar um legu og afmörkun fasteigna nýtist fyrir landfræðileg upplýsingakerfi ríkis, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila eins og Reglugerð um merki fasteigna segir til um.
GeoForm ehf.
Stórhöfða 17 (2. hæð)
110 Reykjavík
Sími: (+354) 617 6624@
geoform@geoform.is