Ný tæki frá Emlid

Síðla árs 2025 tilkynnti Emlid um kröftugar nýjungar með nýrri vörulínu af mælitækjum:

RS4, RS4 Pro og RX2

 

Meiri nákvæmni, hraðari tenging og myndavélar á trjónu og botni

Þessi nýju mælitæki eru fremst í flokki nýrrar kynslóðar GNSS mælitækja þar sem nákvæmni og hraði í að ná stöðugu gervitunglamerki eru lykilhugtök.

 

Nýja vörulínan frá Emlid:

Þessi nýju tæki eru búin fjölda nýjunga sem ekki hafa sést í RTK-tækjum hingað til, og má þar meðal annars nefna myndavélar á trjónu og botni á RS4 Pro, t.d. með notkun aukins veruleika (AR)

Hvernig nýtast svona myndavélar í útsetningum og innmælingum?

Reyndir innmælingamenn þekkja það vel að gervitunglamerki getur verið óstöðugt eða óaðgengilegt í grennd við mannvirki.

Einn af stóru kostunum við RS4 Pro er að það er hægt að útsetja punkta úr fjarlægð með myndavélunum. Punkturinn er svo fínstilltur í þrívídd (XYZ) Þannig helst gervitunglamerki stöðugt og án truflunar frá mannvirkjum eða öðru sem truflar merkið.


Hér að neðan geturðu skoðað myndband
sem fer yfir nokkur lykilatriði við notkun RS4 Pro:

Previous
Previous

Nýjungar í Emlid Flow