Geoform / AiMapit - kortlagning innviða með gervigreind
Geoform ehf. hefur á liðnum vikum unnið að samstarfi við framsækið gervigreindarfyrirtæki á Írlandi, AiMapit.
Gervigreindin er hér notuð til að greina, auðkenna og staðsetja fjölbreytta innviði í mörkinni með mikilli nákvæmni á mun skilvirkari hátt en áður hefur tíðkast. Hugbúnaðarlausnir Geoform sjá um að birta, skrásetja og hagnýta gögnin, ásamt því að gefa yfirsýn í gegnum kort, mælaborð og tölfræðitól.
Gervigreindin getur kortlagt nánast hvað sem er,
Sem dæmi má nefna:
- Innviði
- Gerðir innviða
- Stærðir, hæðir og rúmmál
- Skemmdir og tjón
- Ljóslausa ljósstólpa
- og margt, margt fleira
Hafið samband á geoform@geoform.is ef verkefnið vekur áhuga og þið viljið frekari upplýsingar, og kostnaðaráætlun, fyrir kortlagningu með gervigreind og lausnum Geoform.
Hér má sjá kynningarmyndband fyrir verkefnið

