Nýtt ár - nýjungar frá Emlid

Síðla árs 2025 tilkynnti Emlid um kröftugar nýjungar með nýrri vörulínu af mælitækjum:

RS4, RS4 Pro og RX2

 

Meiri nákvæmni, hraðari tenging og myndavélar á trjónu og botni

Þessi nýju mælitæki eru fremst í flokki nýrrar kynslóðar RTK GNSS mælitækja þar sem nákvæmni og hraði í að ná stöðugu gervitunglamerki eru lykilhugtök.

 

Nýja vörulínan frá Emlid:

Þessi nýju tæki eru búin fjölda nýjunga sem ekki hafa sést í RTK-tækjum hingað til, og má þar meðal annars nefna myndavélar á trjónu og botni á RS4 Pro, t.d. með notkun aukins veruleika (AR)

Gott og blessað - en hvernig nýtast svona myndavélar í útsetningum og innmælingum??

Reyndir innmælingamenn þekkja það vel að gervitunglamerki getur verið óstöðugt eða óaðgengilegt í grennd við mannvirki og skóglendi.

Einn af stóru kostunum við RS4 Pro er að það er hægt að útsetja punkta úr fjarlægð með myndavélunum. Punkturinn er svo fínstilltur í þrívídd (XYZ) Þannig helst gervitunglamerki stöðugt og án truflunar frá mannvirkjum eða skóglendi.

Athygli vekur að Emlid leggur sífellt ríkari áherslu á notkun spjaldtölva, eða snjallsíma með stórum skjá, í stað hefðbundinna stokka sem hafa verið ráðandi í bransanum hingað til.


Hér að neðan geturðu skoðað myndband
sem fer yfir nokkur lykilatriði við notkun RS4 Pro:


- Geoform teymið

Next
Next

Innmælingar-app og mælaborð fyrir Reykjavík